Ein besta gisting sem er í boði í Vestmannaeyjum er á Hótel Vestmannaeyjum. Hótelið er staðsett í hjarta bæjarins og er Einsi Kaldi veitingastaður staðsettur á hótelinu. Þetta hentar vel þeim sem vilja gera vel við sig og fá allt það besta sem eyjan hefur upp á að bjóða. Innifalið í gistingunni er rútuferð um eyjuna og erum með infæddan eyjamann sem leiðsögumann. Það verður farið á vinsælustu staðina eins og Herjólfsdalinn, Stórhöfða, Lundabyggðina ef lundinn er á eyjunni og keyrt yfir nýjahraunið og ummerki gossins skoðuð. Skemmtilegar sögur í bland við fróðleik og mikil yfirsýn. Enstök náttúra eyjanna skoðuð. Einnig er innifalin bátsferð fyrir hópinn og er það alltaf einstök upplifun að skoða mikilfengleg fjöllin og hamrana frá sjó. Skemmtileg frásögn um eyjuna gerið bátsferðina enn skemmtilegri.