Nýendurgerðar íbúðir í gömlu húsi á besta stað í miðbænum. Varla hægt að hafa það betra. Þessari gistingu fylgir skemmtileg rútuferð um eyjuna með leiðsögumanni frá eyjum. Mjög lífleg ferð þar sem farið er oft út á vinsælustu stöðunum og skoðað sig um. Helstu staðirnir eru Herjólfsdalur, Stórhöfði, Lundabyggðin ef lundinn er á eyjunni, og farið yfir nýjahraunið og saga gosins frá 1973 rakin. Sagan sögð og farið yfir staðreyndir í bland við skemmtilegar sögur af fólkinu. Góð yfirsýn yfir alla eyjuna og með einstaka náttúru í fyrirrúmi. Einnig er farið inn í Eldheima sem er flottur endir á góðri ferð. Eftir að búið er að keyra yfir og sjá ummerki gosins og sjá hversu stór breyting var á eyjunni, þá er frábært að sjá allar myndirnar og fá alla söguna beint í æð. Eldheimar geima minngar eldgosins.